Á síðasta ári kom út hjá Sitepoint bókin The
Principles of Beautiful Web Design. Það sem er sérstaklega áhugavert við þessa bók er nálgunin, en
höfundurinn Jason Beaird nálgast viðfangsefnið út frá grafískri hönnun en ekki
forritun. Eins og titillinn gefur til
kynna er hann að freista þess að skilgreina hvernig á að búa til fallega
vefsíðu. Metnaðarfullt verkefni.
Bókin ber þess merki að Jason kemur úr ranni grafískra hönnuða. Í fyrsta kaflanum fer hann yfir skipulag vefsíðunnar og þá takmörkuðu möguleika sem skjárinn í tölvunni og rammarnir skilgreinar. Sem grafískur hönnuður fer hann eðlilega stuttlega út í „theoretiska“ umfjöllun. Ekki neitt leiðinlega en gagnlega.
Frá skipulagi fer hann yfir í liti. Eins og fram kemur hjá Jason er auðvelt að drukkna í litafræðunum og algerlega gleyma sér á þeim stað í tilverunni. Fyrir þá sem lítið hafa skoðað liti og litarval er kaflinn gagnlegur og sýnir ágætlega hversu umfangsmikið umræðuefnið er. Hér er aðallega hægt að læra hvað passar saman og hvað ætti ekki að vera saman, út frá hefðbundnum skilgreiningum.
Á eftir litum kemur áferð. Þessi kafli er líkleg sístur en engu að síður gagnlegur fyrir alla sem eru að hugsa um að setja upp vefsíðu eða láta smíða fyrir sig vefsíðu.
Næst á eftir áferð kemur langskemmtilegasti kaflinn, nefnilega stafagerð. Líklega er hægt að gleyma sér yfir litum og litafræði en þó eru fáar fræðigreinar jafn heillandi og stafagerðin. Enda botnlaus. Hér er farið yfir mögulegar stafagerðir á netinu. Muninn á san og ekki san , bil milli stafa, lóðréttar mælingar og láréttar mælingar o.s.frv.
Myndir og notkun mynda á netinu er umfjöllunarefni næsta kafla. Þar eru ýmiss tæknileg atriði Photoshop til umfjöllunar sem og hvernig best er að nota myndir á vefsíðum.
Í heildina góð bók fyrir þá sem vilja kynna sér undirstöðurnar út frá sjónarhorni grafískrar hönnunar.
Bókina má m.a. panta hjá Sitepoint


