Fór á skemmtilega tónleika með Magga Kjartans (Magnús Jón Kjartansson) og Jóni Ólafssyni í Salnum í gærkvöldi. Þar spilaði Maggi mörg af þeim fallegu lögum sem hann hefur samið gegnum árin. Mörg lög sem við þekkjum vel frá honum sjálfum eða öðrum flytjendum. Og auðvitað í samræmi við auglýsta dagskrá spjölluðu þeir félagar saman um margt skemmtilegt. Ýmsar skemmtilegar uppákomur rötuðu inn á tónleikana, m.a. söng dóttir Magga með honum eitt lag, Gunnar Þórðarson og Stefán Hilmarsson spiluðu saman eitt lag eftir Magga og svo fékk Maggi afhenta viðurkenningu frá félagi tónskálda og textahöfunda. Skemmtileg kvöldstund með skemmtilegum tónlistarmanni. Eins og á tónleikum Magnúsar og Jóhanns voru áheyrendur flestir komnir af léttasta skeiði og hafði Jón Ólafsson á orði að gárungarnir kölluðu þessar kvöldstundir hans "Airwaves for oldies"

Comments