Steve Jobs, einn mesti frumkvöðull samtímans, er látinn langt um aldur fram. Jobs hóf sitt stórmerkilega frumkvæði aðeins 20 ára gamall þegar hann stofnaði Apple fyrirtækið ásamt kunningja sínum Wozniak. Þrátt fyrir gott gegni fyrirtækisins í dag hefur gengið á ýmsu gegnum tíðina og vegurinn frá Apple IIe yfir í iPhone 5 er saga áfalla og uppgangs. Lífæð fyrirtækisins hefur þó alla tíð verið hinn ótrúlegi kraftur og óvenjulega framsýni Jobs.
Þessi viðskiptalegi kraftur Jobs kom mjög vel í ljós þegar hann yfirgaf Apple árið 1986, eftir að þáverandi forstjóri Apple, John Sculley, rak hann. Þá keypt hann lítið fyrirtæki af George Lucas, Pixar, og gerði það að stórveldi í teiknimyndaiðnaðinum. Apple fór hins vegar halloka þangað til Jobs kom þangað aftur áratug síðar.
En endurkoma Jobs í Apple og allar þær stórmerkilegu afurðir sem við göngum með daglega og getum varla verið án, sýna e.t.v. betur en annað hversu risavaxið framlag Jobs er í samtímanum. Og hversu merkilegur einstaklingur hann var. Lykillinn að þeirri velgegni er skilningur Jobs á hjónabandi tækni og hönnunar. En fyrsti iPodinn var í rauninni stórmerkileg bylting í hönnun rétt eins og bylting í tækni.
Jobs hefur sýnt okkur aftur og aftur hversu mikilvægt frumkvöðlastarfið er í samtímanum. Hversu mikilvægur kraftur er fólgin í því svigrúmi sem frumkvæði einstaklingsins er fyrir framvindu hagkerfis og samfélags. Frumkvæði Jobs er einstakt og fá fyrirtæki verða jafn öflug og Apple. Það dregur hins vegar ekki úr mikilvægi allar þeirra sem eru skildir Jobs gegnum frumkvæðið. Jafnvel þeirra sem verða fyrir endalausum mótbyr og áföllum.
Á þessum tímamótum verður athyglisvert að fylgjast með framvindunni hjá Apple. Hvað sem öðru líður er Jobs án efa einn merkilegasti einstaklingur minnar kynslóðar hvort sem litið er til framlags til tækni eða menningar.

Comments