Í gær fórum við Gunna ásamt afa Dæsa á skemmtilega tónleika í Salnum í Kópavogi með þeim félögum Magnúsi Sigmundssyni og Jóhanni Helgasyni. Þetta voru svona spjalltónleikar sem Jón Ólafsson tónlistarmaður stjórnaði.
Fyrsta lagið var hið frábæra lag „Mary Jane“ . Það rifjaðist upp fyrir mér meðan ég hlutstaði á lagið að fyrir mörgum árum eða áratugum heyrði ég þá flytja það í Háskólabíó. Líklega frumflutningur ef ég man rétt. Eins og mörgum öðrum á þeim tíma þótti mér þetta algjörlega frábært lag. Kemur ekki á óvart hversu vel það hefur staðist tímas tönn.
Síða skiptust þeir á að flytja mörg af sínum frábæru lögum. Það var sérlega magnað að hlusta á Jóhann Helgason flytja eitt af sínum bestu lögum, Söknuður. Án efa eitt fallegasta lag sem íslenskur dægurlagasmiður hefur samið. Einnig að hlusta á Magnús flytja sitt undurfallega lag Þú átt mig ein. Tvö lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði ódauðleg. Oft kemur það fólki sem ekki þekkir tónlist þeirra félag á óvart hvað þeir eiga mörg af okkar þekktustu lögum. Lög sem ýmsir flytjendur hafa flutt, eins og t.d. Ástarsorg.
Tónleikarnir voru lágstemmdir í samræmi við þessi fallegu lög og þennan fallega og skemmtilega sal. Jón Ólafsson tónlistarmaður stóð sig eins og vænta mátti af prýði og léði stemminguna passlegum og viðeigandi húmor. Skemmtileg kvöldstund og ég hlakka til að fara í október og hlusta á Magga Kjartans.
