Sæl Guðrún
Ég er einn af þeim einstaklingum í samfélaginu sem gæti fallið undir hugtakið almennur borgari. Ég hef verið viðskiptavinur Arion banka (Búnaðarbankans / Kaupþings / Kaupþings banka) frá 1983. Ég rek mitt eigið fyrirtæki, hef verið í frumkvöðlastarfi og ýmsum öðrum störfum á lífsleiðinni og hef þar af leiðandi ágæta þekkingu á atvinnulífi og viðskiptum. Við hrunið fannst mér leitt að sjá hvernig spillt hugafar og skortur á siðferði leiddi jafnaldra mína marga inn á braut sem virðist tæplega skilgreind með öður hugtaki en glæpastarfsemi. Dapurlegir gráðugir miðaldra karlar sem rákust saman í siðblindri hjörð. Slíkt á svo auðvitað eftir að koma í ljós þegar réttarkerfið hefur lokið sínu starfi, hvort þetta hafi verið glæpastarfsemi.
Hins vegar verður varla deilt um þá risavöxnu siðferðisbresti sem einkenndi þetta fólk allt, eins og fram kom í skýrslunni um hrunið.
Viðtalið við þig í útvarpinu hryggir mig mjög, mjög mikið. Ég hef verið talsmaður þess í almennri umræðu, sem auðvitað er bara fólkið í kringum mig, að rétt væri að beina ábyrgðarstöðum til yngra fólks og þá einkum kvenna. Rökstuðningur þinn í útvarpinu og klækirnir við að búa til réttlætingar, röksemdir og skýringar á ákvörðun um laun bankastjóra Arion var þess eðlis að mér sýnist ekkert vera lagast nema síður sé. Persónulega finnst mér þetta siðblinda af sömu stærðargráðu og var fyrir hrun. Í mínum huga og vegna þinna orða eru ungar vel menntaðar konur að verða svipaðar og siðblindu miðaldra karlarnir sem ollu hruninu. Mér finnst þú þannig vera manneskja með siðblindu sem muni leiða samfélagið til samskonar ástands og við erum að glíma við. Þetta er meira áfall fyrir mig gagnvart uppbyggingunni og bankanum, sem ég hef gert viðskipti við í 25 ár, en áfallið við hrunið, að a.m.k. meiri vonbrigði.
Satt að segja finnst mér máið afar einfalt. Við hrunið og uppúr því var gert samkomulag um að taka nokkur ár í að vinna okkur út úr erfiðleikunum. Forsætisráðherra og ríkisstjórnin gáfu m.a. út leiðbeinandi fyrirmæli um laun forstjóra og stjórnenda. Þetta er eins konar stef við þjóðarsátt til að vinna saman að uppbyggingu. Setja tóninn fyrir nýja siðferðisvitund. Það er einmitt þetta sem þú hraunar yfir með þinni ákvörðun og þínum málflutningi í útvarpinu með því að segja að af hinum og þessum ástæðum og orsökum geti þetta ekki átt við um þig og þinn bankastjóra. Þetta sé svo merkilegt, hann sé svo klár, þið séuð svo flink o.s.frv. Fyrir okkur almenna borgara er þetta bara endurtekning á sömu þvælunni og var fyrir hrun. Ég sé engan mun á þessum málflutningi og málflutningi útrásavíkinganna.
Nú veit ég að til eru fyrirtæki sem hafa tekið þetta allt mjög alvarlega. Stór fyrirtæki sem eru ekkert að pukrast eða sveigja hjá fyrirmælum og reglum með samskonar æfingum og stjórn og bankastjóri Arion banka. Fyrirtæki sem fara eftir öllu sem Fjármálaeftirlitið segir, sem taka alvarlega tilmæli um siðferðisþrek í anda þeirrar þjóðarsáttar sem þorri þjóðarinnar og almennir borgarar eru að vinna eftir. Fyrirtæki sem eru að skila góðum hagnaði og eru með fína og hæfa stjórnendur. Fólk sem ekki er með siðblindu.
Ykkar málflutningur og röksemdasmíði hefur síðan aðrar og miklu alvarlegri afleiðingar. Með því að haga sér svona eruð þið almennt að veikja þær stoðir sem samtök atvinnulífsins þurfa áð að halda um þessar mundir. Þið veikið stórlega þann slagkraft og trúverðugleika sem samtökin þurfa á að halda. Það hljómar mjög undarlega í augum almennra borgara að umhverfi fyrirtækja sé svo slæmt að mikið og margt þurfi að laga frá hendi stjórnvalda, en á sama tíma er hægt að smíða röksemdir, skilgreiningar, réttlætingar og sjálfsagt lögfræðiálit til að taka miklu meiri fjármuni út úr kerfinu til ykkar og þeirra sem eru á beit í nálægð við stjórnina. Miklu meira en aðrir hafa aðgang að. Þið þurfið meir pening, jafnvel miklu meiri pening vegna þess að þið eruð svo klár. Persónulega kaupi ég ekki þessar röksendir þar sem ég held að þið séuð bara venjulegt fólk með nógu mikinn siðferðisbrest til að réttlæta óeðlilega sjálftöku á fjármunum sem ykkur hefur verið treyst fyrir. Ef þið í stjórn bankans sjáið þetta ekki þá eruð þið of siðblind til að vera í stjórninni. Mér finnst þið vera skemmdaverkamenn þjóðarsáttar sem skaðið samfélagið, samtök atvinnulífsins og truflið eðlilegan framgang uppbyggingar. Mér þætti mjög eðlilegt að bæði þú og bankastjórinn óskuðuð eftir lausn frá þeim ábyrgðarstöðum sem þið gegnið hjá Arion banka. Bankanum sem ég hef gert viðskipti við í meira en 25 ár.Banka þar sem ég hef alla tíð mætt öflugu, duglegu og þægilegu starfsfólki. Þ.e.a. segja þessu venjulega starfsfólki sem er á venjulegum launum og er í raun hin eiginlega burðarás bankans. Starfsfólki sem hefur alla tíð verið bankanum til sóma gegnum þykkt og þunnt og haldið viðskiptavinunum í viðskiptum með notalegri framkomu og faglegum vinnubrögðum.
Einar Páll Svavarsson
