Áður en lagt er af stað með vefsíðugerð er þægilegt að skilgreina umfang vefsíðunnar. Reyna þannig að átta sig á umfangi hennar og stærð. Setja niður á blað hvað þarf að koma fram og hvað á að segja. Eða með öðrum orðum hvernig á að skipuleggja vefsíðuna. Til eru margar góðar leiðir, en ein af þeim sem okkur hjá Emstrum hefur þótt gagnast hvað best er að nota Excel.
Hvað er veftré?
Veftré er hugtak sem er notað til þess að átta sig á og skilgreina uppbyggingu vefsíðunnar. Þannig myndar leiðakerfið efst á hverri vefsíðu kjarnann í veftrénu. Á þeim stað í láréttum borða eru gjarnan fimm til níu tenglar sem mynda aðalleiðarkerfi vefsíðunnar. Út frá þeim kjarna, aðalleiðarkerfinu, hríslast síðan hinar ýmsu greinar sem auðvelda gestum vefsíðunnar að átta sig á þeim upplýsingum sem henni er ætlað að veita. Ekki er óalgengt að sjá tengla eins og Heim, Um okkur, Okkar vörur, Staðsetning eða Hafa samband í aðalleiðarkerfinu.
Hrísla út frá aðalleiðarkerfi
Dæmi um hríslu undir aðalleiðakerfinu er annað leiðakerfi sem gjarnan er lóðrétt í dálki vinstra megin. Samanber listinn undir STARFSEMIN á myndinni af vefsíðu Vistbyggðarráðs hér fyrir ofan. Leiðakerfi sem sést þegar gesturinn smellir á tengil í aðalleiðakerfinu. T.d. ef gesturinn smellir á tengil sem heitir Okkar vörur í aðalleiðarkerfinu sér hann vöruflokka í vinstri dálki. Ef fyrirtækið er fataverslun gæti listinn samanstaðið af Kvenföt, Karlmannsföt, Barnaföt, Húfur, Skór o.s.frv. Ef gesturinn smellir hins vegar á Um okkur sér hann nýtt leiðakerfi, nýjan lista, sem gæti verið Starfsfólk, Saga fyrirtækisins, Staðsetning og annað sem fyrirtækið, einstaklingur, félagið eða stofnunin sem er að setja upp vefsíðu telur æskilegt að koma á framfæri.
Sjá frekari umfjöllun og leiðbeiningar á emstrur.is hér.

Comments