Þessa skemmtilegu mynd tók ég af sunddeild KR fyrir nokkrum árum. Þá var hópurinn í æfinga- og skemmtiferð á suðurlandi og gekk m.a. í Reykjadal fyrir ofan Hveragerði þar sem hægt er að baða sig í litlum læk. Ákaflega skemmtilegur hópur og samstilltur. Ég fór í ferðina með dóttur minni henni Höllu sem foreldri og sá um að vera til aðstoðar. Þetta gerði ég eins og margir aðrir foreldrar í nokkur skipti og hafði gjarnan mikla ánægju af.
Ég held að ég hafi sett u.þ.b. 150 myndir á Flickr. Engin mynd hefur fengið jafn mikla skoðun og þessi. Rúmlega 14.000 manns hafa skoðað myndina, en næsta mynd á eftir henni hefur verið skoðuð rúmlega 1000 sinnum. E.t.v. ekkert skrítið við það þar sem myndin er sérlega skemmtileg rétt eins og hópurinn sem á henni er.
Þetta tímabil meðan Halla var í sunddeild KR var ákaflega skemmtilegt fyrir okkur öll á sama hátt og tímabilið þegar Erna var í skíðadeild KR. Skemmtilegur félagsskapur með skemmtilegu fólki.

