Núna í lok september sendum við hjá Emstrum Vefsíðugerð nýja heimasíðu fyrir Karlakórinn Fóstbræður út á netið. Vefsíðan var smíðuð frá grunni í Drupal vefumsjónarkerfinu og byggði á þarfagreiningu frá Fóstbræðrum. Þar var gerð krafa um almenna þætti eins og upplýsingar um kórinn, tónleikahald og útgefna tónlist. Þá þurftu að vera upplýsingar um Fóstbræðraheimilið, upplýsingar fyrir styrktarmeðlimi, atburðadagatal og fl. Einnig var gerð krafa um að auðvelt væri að halda utanum breytingar með þægilegu vefumsjónarkerfi. Til viðbótar var ákveðið að halda utanum félagaskránna með hinu öfluga aðgangsstýringarkerfi frá Drupal. Með því er hver og einn félagsmaður ábyrgur fyrir sínum upplýsingum og þeim breytingum sem kunna að verða á hans högum. T.d. þegar viðkomandi flytur eða fær nýtt netfang. Heimasíðan er nútímaleg samskiptasíða sem hentar vel fyrir félagskap eins og Karlakórinn Fóstbræður. Erum við sannfærð um að þessi heimasíða á eftir að efla upplýsingaflæði í félaginu.
Karlakórinn Fóstbræður er sá karlakór Íslands sem á lengstan samfelldan starfsaldur að baki en kórinn hefur starfað samfellt frá haustinu 1916 og hefur áratugum saman miðað aldur sinn við það ártal.
Frá stofnun og til ársins 1937 hét kórinn Karlakór KFUM og starfaði fyrst og fremst innan vébanda þess félags. Árið 1937 losnuðu tengslin við móðurfélagið og þá þótti mönnum rétt að undirstrika það með nafnbreytingu. Nafnið Fóstbræður er sótt til kvartetts sem starfaði í upphafi aldarinnar en meðal söngmanna þar var Jón Halldórsson fyrsti söngstjóri Karlakórs KFUM, síðar Fóstbræðra.

Comments