Fyrir nokkrum dögum fór ný vefsíða frá Emstrum vefsíðugerð, vefur Myndlistaskólans í Reykjavík, út á netið. Líklega er þetta stærsti og efnismesti vefur sem Emstrur hafa sett upp fram að þessu. Vefurinn er í meginatriðum kynning á starfsemi skólans, kynning á uppbyggingu námsins, kynning á námskeiðum og námi ásamt því að taka á móti umsóknum. Vefsíðan er sett upp í Drupal vefumsjónarkerfinu sem er vel fyrir sjálfseignarstofnun eins og Myndlistaskólann í Reykjavík þar sem Drupal er “open source” hugbúnaður.
Myndlistakólinn í Reykjavík er þannig laus við mánaðarlegar greiðslur fyrir hugbúnað.
Með Drupal vefumsjónarkerfinu kemur öflugt aðgangsstýringarkerfi sem gerir skólanaum kleyft að setja upp og stýra aðgangi. Þannig verður t.d. hægt að setja upp lokaða spjallþræði sem t.d. nemendur og kennarar hafa einir aðgang að. Einnig verður hægt að setja upp svæði þar sem nemendur og kennarar með heimildir geta kynnt verk sín með texta, myndum og vídeói. Þá eru margir aðrir möguleikar í Drupal kerfinu sem Myndlistaskólinn mun nýta sér á næstu vikum og mánuðum sem gera vefsíðu skólans að gagnvirku afli í öllu skólastarfinu.

Comments