Núna hafa Emstrur sett upp heimasíðu fyrir Nemendafélag Háskólans á Bifröst á léninu skolafelag.is. Með þessari vefsíðu frá Emstrum í Drupal vefumsjónarkerfinu opnast nýir möguleikar fyrir skólafélagið. Mun auðveldara er að halda úti fréttum, breyta upplýsingum um hin ýmsu félög, opna spjallþræði um hagsmunamál félagsins og nemenda í Háskólanum á Bifröst, gera skoðanakannanir, halda úti áhugaverðu myndaalbúmi og margt fleira. Allt á færi þeirra sem taka að sér að vera vefstjórar eða annarra sem félagið heimilar að setja efni inn á síðuna. Eða með öðrum orðum það er mun auðveldara að halda úti vefsíðu sem er ígildi fjölmiðils í eigu félagsins.
Eins og hjá mörgum félagasamtökum var vefsíða félagsins nánast stopp vegna erfiðleika við að setja inn nýtt efni. Vefumsjónarkerfið var óþjált og erfitt að fá upplýsingar um notkun þess. Þetta kom harkalega niður á nýju efni og smátt og smátt staðnaði vefsíðan. Núna er auðvelt fyrir nemendafélag skólans að halda úti öflugri og kraftmikilli vefsíðu sem sannarlega mun þjóna félögum, nemendum við Háskólann á Bifröst.
