Hææ þú!
Eftir að hafa séð smá brot af Henrik Vibskov línunni fyrir haust/vetur 2010 á blaðsíðum Covers í dag, var ég mjög heilluð og fór því heim að rannsaka hana betur.
Þetta er algjör ævintýraheimur í fötum! Ég veit ekki hvort það er samspil hattana og glerauganna, eða hvað, en línan minna mig helst á Lísu í Undralandi. Gullfallegir litir í bland við spennandi form!
Vanalega fyrirlít ég rúllukraga en ég þrái peysuna á fyrstu myndinni og mynd númer fjögur lætur mig í alvöru langa að klæða mig í allt svart (frá toppi til táar).
Vibskov er snillingur...
Halla
Comments